SPURNING 19
Hvað innihalda mismunandi bækur Biblíunnar?
HEBRESKU RITNINGARNAR („GAMLA TESTAMENTIГ)
MÓSEBÆKURNAR (5. BÆKUR):
1. til 5. Mósebók
Frá sköpuninni til stofnunar Ísraelsþjóðarinnar.
SÖGULEGAR BÆKUR (12 BÆKUR):
Jósúabók, Dómarabókin, Rutarbók
För Ísraelsmanna inn í fyrirheitna landið og atburðirnir í tengslum við það.
1. og 2. Samúelsbók, 1. og 2. Konungabók, 1. og 2. Kroníkubók
Saga Ísraelsþjóðarinnar fram að eyðingu Jerúsalem.
Esrabók, Nehemíabók, Esterarbók
Saga Gyðinga eftir heimkomuna úr útlegðinni í Babýlon.
LJÓÐRÆNAR BÆKUR (5 BÆKUR):
Jobsbók, Sálmarnir, Orðskviðirnir, Prédikarinn, Ljóðaljóðin
Safn spakmæla og ljóða.
SPÁDÓMSBÆKUR (17 BÆKUR)
Jesaja, Jeremía, Harmljóðin, Esekíel, Daníel, Hósea, Jóel, Amos, Óbadía, Jónas, Míka, Nahúm, Habakkuk, Sefanía, Haggaí, Sakaría, Malakí
Spádómar sem snerta þjóð Guðs.
GRÍSKU RITNINGARNAR („NÝJA TESTAMENTIГ)
GUÐSPJÖLLIN FJÖGUR (4 BÆKUR):
Matteus, Markús, Lúkas, Jóhannes
Sagan af ævi og þjónustu Jesú.
POSTULASAGAN (1 BÓK):
Sagan af fyrstu árum kristna safnaðarins og trúboði hans.
BRÉFIN (21 BÓK):
Rómverjabréfið, 1. og 2. Korintubréf, Galatabréfið, Efesusbréfið, Filippíbréfið, Kólossubréfið, 1. og 2. Þessaloníkubréf
Bréf til ýmissa kristinna safnaða.
1. og 2. Tímóteusarbréf, Títusarbréfið, Fílemonsbréfið
Bréf til kristinna einstaklinga.
Hebreabréfið, Jakobsbréfið, 1. og 2. Pétursbréf, 1., 2. og 3. Jóhannesarbréf, Júdasarbréfið
Almenn bréf til kristinna manna.
OPINBERUNARBÓKIN (1 BÓK):
Spádómlegar sýnir sem Jóhannes fékk að sjá.