Síðara bréfið til Korintumanna 6:1–18

  • Ekki má misnota góðvild Guðs (1, 2)

  • Páll lýsir þjónustu sinni (3–13)

  • Gangist ekki undir ok með vantrúuðum (14–18)

6  Sem samverkamenn Guðs+ hvetjum við ykkur líka til að láta ekki einstaka góðvild hans, sem þið hafið þegið, verða til einskis.+  Hann segir: „Á tíma velvildar bænheyrði ég þig og á degi frelsunar hjálpaði ég þér.“+ Nú er þessi sérstaki velvildartími. Nú er dagur frelsunarinnar.  Við gefum engum neitt tilefni til hrösunar svo að enginn hafi ástæðu til að gagnrýna þjónustu okkar.+  Við sýnum á allan hátt að við erum þjónar Guðs+ með miklu þolgæði, í raunum, í skorti, í erfiðleikum,+  í misþyrmingum, í fangelsi+ og í uppþotum. Við höfum stritað, verið andvaka og verið matarlausir.+  Við lifum hreinu lífi, búum yfir þekkingu, erum þolinmóðir,+ sýnum góðvild,+ lútum leiðsögn heilags anda og sýnum hræsnislausan kærleika.+  Við segjum sannleikann, reiðum okkur á kraft Guðs+ og beitum vopnum réttlætisins+ með hægri hendi* og vinstri.*  Við fáum bæði heiður og vansæmd, gagnrýni og hrós. Við erum álitnir svikarar en segjum þó sannleikann,  óþekktir en erum þó vel þekktir og að dauða komnir* en erum þó lifandi.+ Okkur virðist vera refsað* en við erum þó ekki framseldir til dauða.+ 10  Við virðumst hryggir en erum þó alltaf glaðir, fátækir en auðgum þó marga, allslausir en eigum þó allt.+ 11  Við höfum talað opinskátt við ykkur, Korintumenn, og við höfum gert rúmgott í hjörtum okkar. 12  Við höldum ekki aftur af kærleika okkar til ykkar+ en þið berið takmarkaðan kærleika til okkar. 13  Komið nú eins fram við okkur – ég tala við ykkur eins og börnin mín: Gerið líka rúmgott í hjörtum ykkar.*+ 14  Gangist ekki undir ok með vantrúuðum+ því að okið verður ójafnt.* Hvað eiga réttlæti og lögleysi saman að sælda?+ Eða hvað er sameiginlegt með ljósi og myrkri?+ 15  Og hvaða samhljómur er með Kristi og Belíar?*+ Eða hvað á hinn trúaði* sameiginlegt* með vantrúuðum?+ 16  Hvernig geta musteri Guðs og skurðgoð átt saman?+ Við erum musteri lifandi Guðs+ eins og Guð hefur sagt: „Ég mun búa meðal þeirra+ og ganga um meðal þeirra, ég verð Guð þeirra og þeir verða fólk mitt.“+ 17  „‚Farið því burt frá þeim og aðgreinið ykkur,‘ segir Jehóva,* ‚hættið að snerta það sem er óhreint,‘“+ „‚og ég mun taka ykkur að mér‘“.+ 18  „‚Ég verð ykkur faðir+ og þið verðið mér synir og dætur,‘+ segir Jehóva,* Hinn almáttugi.“

Neðanmáls

Hugsanlega til varnar.
Hugsanlega til sóknar.
Eða „dauðasekir“.
Eða „Við virðumst fá ögun“.
Eða „Látið líka verða rúmgott hjá ykkur“.
Eða „Bindist ekki vantrúuðum“.
Eða „hvaða hlutdeild á hinn trúaði“.
Eða „trúföst manneskja“.
Dregið af hebresku orði sem merkir ‚einskis nýtur‘. Átt er við Satan.