Fimmta Mósebók 30:1–20
30 Þegar allt þetta er komið yfir þig, blessunin og bölvunin sem ég hef lagt fyrir þig,+ og þú minnist þessara orða*+ meðal allra þjóðanna sem Jehóva Guð þinn hefur hrakið þig til+
2 og þú snýrð aftur til Jehóva Guðs þíns+ af öllu hjarta og allri sál,*+ hlustar á hann og gerir allt sem ég segi þér í dag, bæði þú og börn þín,
3 þá mun Jehóva Guð þinn leiða þig heim úr útlegðinni,+ sýna þér miskunn+ og safna þér saman frá öllum þjóðunum sem Jehóva Guð þinn hefur hrakið þig til.+
4 Jafnvel þótt þú hafir dreifst allt til endimarka himins mun Jehóva Guð þinn safna þér þaðan og flytja þig heim.+
5 Jehóva Guð þinn leiðir þig inn í landið sem feður þínir tóku til eignar og þú sest þar að. Hann veitir þér velgengni og lætur þér fjölga meira en feðrum þínum.+
6 Jehóva Guð þinn hreinsar* hjarta þitt og hjörtu afkomenda þinna+ svo að þú elskir Jehóva Guð þinn af öllu hjarta og allri sál* og fáir að lifa.+
7 Jehóva Guð þinn lætur þá allar þessar bölvanir koma yfir óvini þína sem hötuðu þig og ofsóttu.+
8 Þú ferð aftur að hlusta á Jehóva og halda öll boðorð hans sem ég flyt þér í dag.
9 Jehóva Guð þinn mun veita þér ríkulega velgengni í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.+ Hann gefur þér fjölda barna og búfjár og margfalda uppskeru. Jehóva hefur yndi af að blessa þig eins og hann hafði yndi af forfeðrum þínum.+
10 Þá hlustarðu á Jehóva Guð þinn og heldur boðorð hans og ákvæði sem eru skráð í þessari lögbók, og þú snýrð aftur til Jehóva Guðs þíns af öllu hjarta og allri sál.*+
11 Þetta boðorð, sem ég gef þér í dag, er ekki of þungt fyrir þig og ekki utan seilingar.*+
12 Það er ekki á himnum svo að þú þurfir að spyrja: ‚Hver stígur upp til himins og sækir það handa okkur svo að við getum heyrt það og haldið?‘+
13 Það er ekki heldur handan hafsins svo að þú þurfir að spyrja: ‚Hver fer yfir hafið og sækir það handa okkur svo að við getum heyrt það og haldið?‘
14 Nei, orðið er mjög nálægt þér, í munni þínum og hjarta,+ svo að þú getur farið eftir því.+
15 Ég legg fyrir þig í dag líf og gæfu, dauða og ógæfu.+
16 Ef þú hlustar á boðorð Jehóva Guðs þíns sem ég gef þér í dag með því að elska Jehóva Guð þinn,+ ganga á vegum hans og halda boðorð hans, ákvæði og lög muntu lifa+ og þér mun fjölga, og Jehóva Guð þinn mun blessa þig í landinu sem þú tekur til eignar.+
17 En ef þið snúið hjörtum ykkar frá Guði,+ hlustið ekki og látið tælast til að falla fram fyrir öðrum guðum og þjóna þeim+
18 segi ég ykkur í dag að ykkur verður útrýmt.+ Þá lifið þið ekki lengi í landinu sem þið haldið nú inn í yfir Jórdan til að taka til eignar.
19 Ég kalla himin og jörð til vitnis í dag um að ég hef lagt fyrir þig líf og dauða, blessun og bölvun.+ Veldu lífið svo að þið lifið,+ þú og afkomendur þínir,+
20 með því að elska Jehóva Guð þinn,+ hlusta á hann og halda þig fast við hann+ því að Jehóva gefur þér líf og langa ævi í landinu sem hann sór að gefa forfeðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakobi.“+
Neðanmáls
^ Eða „þú rifjar þessi orð upp í hjarta þér“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „umsker“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „ekki fjarlægt“.