Sálmur 145:1–21

  • Lofar Guð, konunginn mikla

    • ‚Ég boða hve stórfenglegur Guð er‘ (6)

    • „Jehóva er öllum góður“ (9)

    • „Þínir trúföstu lofa þig“ (10)

    • Eilífur konungdómur Guðs (13)

    • Hönd Guðs uppfyllir langanir allra (16)

Lofsöngur eftir Davíð. א [alef] 145  Ég upphef þig, Guð minn og konungur,+ég lofa nafn þitt um alla eilífð.+ ב [bet]   Allan daginn lofa ég þig,+ég lofa nafn þitt um alla eilífð.+ ג [gimel]   Jehóva er mikill og verðskuldar lof,+dýrð hans er ofvaxin skilningi okkar.*+ ד [dalet]   Kynslóð eftir kynslóð mun lofa verk þínog segja frá máttarverkum þínum.+ ה [he]   Þær tala um dýrðarljóma hátignar þinnar+og ég hugleiði undraverk þín. ו [vá]   Þær tala um mikilfengleg afrek þín*og ég boða hve stórfenglegur þú ert. ז [zajin]   Þær eru himinlifandi þegar þær hugsa um ríkulega góðvild þína+og hrópa af gleði yfir réttlæti þínu.+ ח [het]   Jehóva er samúðarfullur og miskunnsamur,+seinn til reiði og sýnir tryggan kærleika í ríkum mæli.+ ט [tet]   Jehóva er öllum góður+og miskunn hans birtist í öllum verkum hans. י [jód] 10  Öll verk þín upphefja þig, Jehóva,+og þínir trúföstu lofa þig.+ כ [kaf] 11  Þeir boða dýrð konungdóms þíns+og segja frá valdi þínu+ ל [lamed] 12  svo að menn kynnist máttarverkum þínum+og dýrðarljóma konungdóms þíns.+ מ [mem] 13  Konungdómur þinn er eilífurog veldi þitt varir um allar kynslóðir.+ ס [samek] 14  Jehóva styður alla sem eru að falla+og reisir upp alla niðurbeygða.+ ע [ajin] 15  Augu allra horfa vonglöð til þín,þú gefur þeim fæðu á réttum tíma.+ פ [pe] 16  Þú lýkur upp hendi þinniog uppfyllir langanir alls sem lifir.+ צ [tsade] 17  Jehóva er réttlátur á öllum vegum sínum+og trúfastur í öllu sem hann gerir.+ ק [qóf] 18  Jehóva er nálægur öllum sem ákalla hann,+öllum sem ákalla hann í einlægni.+ ר [res] 19  Hann uppfyllir langanir þeirra sem óttast hann,+hann heyrir þá hrópa á hjálp og bjargar þeim.+ ש [shin] 20  Jehóva verndar alla sem elska hann+en eyðir öllum illum.+ ת [tá] 21  Ég vil lofsyngja Jehóva,+allt sem lifir lofi heilagt nafn hans um alla eilífð.+

Neðanmáls

Eða „er órannsakanleg“.
Eða „mikilfenglegan mátt þinn“.