Sálmur 31:1–24
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
31 Hjá þér, Jehóva, hef ég leitað athvarfs.+
Láttu mig aldrei verða mér til skammar,+bjargaðu mér því að þú ert réttlátur.+
2 Beygðu þig niður og hlustaðu,*komdu mér fljótt til hjálpar.+
Vertu mér fjallavígi,varnarvirki mér til bjargar.+
3 Þú ert bjarg mitt og vígi,+þú leiðir mig og vísar mér veginn vegna nafns þíns.+
4 Þú leysir mig úr netinu sem þeir lögðu fyrir mig+því að þú ert varnarvirki mitt.+
5 Í þínar hendur fel ég anda minn,+þú hefur frelsað mig, Jehóva, Guð sannleikans.*+
6 Ég hata þá sem tilbiðja einskis nýt skurðgoð,ég legg traust mitt á Jehóva.
7 Ég gleðst innilega yfir tryggum kærleika þínumþví að þú hefur séð neyð mína+og veist hve þjáður ég er.
8 Þú hefur ekki framselt mig í hendur óvinarinsheldur leitt mig í öruggt skjól.*
9 Vertu mér góður, Jehóva, því að ég er í öngum mínum,augu mín eru myrkvuð af angist+ og allur líkami minn* veikburða.+
10 Sorgin heltekur líf mitt,+árin líða með kveinstöfum.+
Kraftar mínir eru á þrotum vegna syndar minnar,bein mín veslast upp.+
11 Allir andstæðingar mínir smána mig,+ekki síst nágrannar mínir.
Kunningja mína hryllir við mér,þeir flýja þegar þeir sjá mig úti á götu.+
12 Ég er horfinn úr minni* þeirra, gleymdur eins og dauður maður,ég er eins og brotið ker.
13 Ég heyri að margir baktala mig,ógn steðjar að úr öllum áttum.+
Þeir sameinast gegn mérog leggja á ráðin um að drepa mig.+
14 En ég treysti þér, Jehóva,+og lýsi yfir: „Þú ert Guð minn.“+
15 Dagar mínir eru í þinni hendi,bjargaðu mér úr greipum óvina minna og þeirra sem ofsækja mig.+
16 Láttu auglit þitt lýsa yfir þjón þinn,+frelsaðu mig vegna þíns trygga kærleika.
17 Jehóva, láttu mig ekki verða mér til skammar þegar ég hrópa til þín,+láttu illvirkjana verða sér til skammar,+þagna í gröfinni.*+
18 Láttu lygavarir verða hljóðar,+varir sem lítilsvirða hina réttlátu með hroka og fyrirlitningu.
19 Góðvild þín er sannarlega mikil!+
Þú hefur geymt hana handa þeim sem óttast þig+og sýnt öllum að þú ert góður við þá sem leita athvarfs hjá þér.+
20 Þú verndar þá í skjóli auglits þíns+fyrir ráðabruggi manna,felur þá í skýli þínufyrir illskeyttum árásum.*+
21 Lofaður sé Jehóvaþví að á stórkostlegan hátt sýndi hann mér tryggan kærleika+ í umsetinni borg.+
22 Ég fylltist örvæntingu og sagði:
„Ég dey og hverf úr augsýn þinni.“+
En þú heyrðir þegar ég hrópaði til þín á hjálp.+
23 Elskið Jehóva, allir hans trúu.+
Jehóva verndar hina trúföstu+en refsar harðlega hinum hrokafullu.+
24 Verið hugrökk og sterk,*+þið sem bíðið Jehóva.+
Neðanmáls
^ Orðrétt „Hneigðu eyra þitt til mín“.
^ Eða „þú trúfasti Guð“.
^ Eða „rýmkað um mig“.
^ Eða „sál mín og kviður“.
^ Orðrétt „hjarta“.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „fyrir deilum tungna“.
^ Eða „og styrkið hjörtu ykkar“.