Úr ýmsum áttum
Bandaríkin
Samkvæmt einni könnun reyndist næstum þriðjungur gangandi vegfarenda vera með hugann við annað meðan þeir fóru yfir fjölfarnar umferðargötur. Þeir voru að hlusta á tónlist, tala í símann og fleira. Hættulegasta truflunin var að senda smáskilaboð. Þeir sem gerðu það voru 18 prósentum lengur að fara yfir götuna en þeir sem létu ekkert trufla sig, og voru 3,9 prósentum líklegri til að hunsa ljósin, fara yfir götuna utan gangbrautar eða án þess að líta til beggja hliða.
Nígería
Konur frá Nígeríu, sem seldar eru mansali til Evrópu, eru látnar sverja þagnareið í juju-galdrahofum. Til að ná þeim á sitt vald og tryggja hlýðni þeirra sem kynlífsþræla hafa þeir sem selja þær notfært sér djúpstæðan ótta þeirra við að fá refsingu úr andaheiminum.
Spánn
Um 5 til 10 prósent þeirra sem sækja um vinnu og hafa verið atvinnulausir lengi taka háskólagráðu sína og starfsreynslu af ferilskránni til að líta ekki út fyrir að hafa of mikla menntun.
Heimurinn
Reykur frá einföldum eldstæðum er talinn vera helsta dánarorsök í þróunarlöndunum en þar deyja fjórar milljónir ár hvert úr öndunarfærasjúkdómum af völdum reykeitrunar. Rannsakendur segja að eiturefnin úr viðar- og kolaofnum séu jafn banvæn og eiturefnin í sígarettureyk.