Leggðu biblíubækurnar á minnið (1. hluti)
Sækja:
1. 1. Mósebók – Segir hvernig paradís glataðist.
2. Mósebók – Með sterkri hendi frelsaði Guð sitt fólk.
3. Mósebók – Lög Guð sem hélt þeim heilögum hvern dag.
4. Mósebók – Sumir komust ekki inn í Guðs land.
5. Mósebók – Hlusta, hlýða öll við getum vel.
Jósúabók – Hver fjölskylda fékk stað að búa á.
Dómarabókin – Guðs kappar unnu mikil stórvirki.
Rutarbók – Fékk fjölskyldu og heimili að gjöf.
Fyrri Samúelsbók – Guð valdi trúan Davíð fyrir kóng.
Síðari Samúelsbók – Synd og sorg á heimilinu hans.
Fyrri Konungabók – Konungsríkið skiptist þar í tvennt.
Síðari Konungabók – Margir vondir en nokkrir trúir menn.
Fyrri Kroníkubók – Þeir lærðu’ af því sem áður hafði gerst.
Síðari Kroníkubók – Vondir menn leiða þjóðina til falls.
Esrabók – Sönn tilbeiðsla var endurreist á ný.
Nehemíabók – Bætti borgina og múrana í kring.
Esterarbók – Mætti hugrökk þegar rétti tíminn kom.
Jobsbók – Trúfesti er dýrmæt í augum Guðs.
Sálmarnir – Söngvarnir um kærleik Guðs og mátt.
Orðskviðirnir – Viskan í þeim er alltaf sönn og trú.
Prédikarinn – Við verðum glöð að þjóna Jehóva.
Ljóðaljóðin – Sönn ást er alltaf traust og alltaf sterk.
Jesaja – Hvernig lífið verður, Jesús völdin fær.
(VIÐLAG)
Biblían er allra bóka best.
Þú manst hún er orð Jehóva, það sést.
Á hverjum degi lestu og lærðu’ að hlýða vel.
Biblían er allra bóka best.