Hvað segir Biblían um samkynhneigð?
Svar Biblíunnar
Þegar Guð skapaði mennina ætlaði hann þeim einungis að stunda kynlíf innan vébanda hjónabands karls og konu. (1. Mósebók 1:27, 28; 3. Mósebók 18:22; Orðskviðirnir 5:18, 19) Biblían fordæmir allt kynlíf sem er ekki milli eiginmanns og eiginkonu. (1. Korintubréf 6:18) Þetta á við hvort sem um er að ræða athafnir samkynhneigðra eða gagnkynhneigðra, svo sem kynmök, fitl við kynfæri annarrar manneskju eða athafnir eins munn- og endaþarmsmök.
Enda þótt Biblían sé á móti kynlífi samkynhneigðra samþykkir hún ekki hatur á samkynhneigðu fólki. Kristið fólk á að ,virða alla menn‘. – 1. Pétursbréf 2:17.
Er samkynhneigð meðfædd?
Biblían nefnir ekki hvort samkynhneigð eigi sér líffræðilegar orsakir en segir hins vegar að við höfum öll meðfædda tilhneigingu til að brjóta gegn boðum Guðs. (Rómverjabréfið 7:21-25) En þótt Biblían fjalli ekki um ástæðuna fyrir samkynhneigð bannar hún slíkt líferni.
Að þóknast Guði þrátt fyrir að laðast að sama kyni.
Biblían segir: „Deyðið því hið jarðbundna í fari ykkar: hórdóm, saurlifnað, losta.“ (Kólossubréfið 3:5) Til að deyða rangar langanir sem leiða til rangra verka þarf maður að hafa stjórn á hugsun sinni. Ef maður fyllir hugann að staðaldri með uppbyggjandi hugsunum er auðveldara að vísa á bug röngum löngunum. (Filippíbréfið 4:8; Jakobsbréfið 1:14, 15) Þótt þetta sé kannski erfitt í byrjun getur það orðið auðveldara með tímanum. Guð lofar að hjálpa okkur að „endurnýjast í anda og hugsun“. – Efesusbréfið 4:22-24.
Milljónir gagnkynhneigðra, sem vilja fylgja meginreglum Biblíunnar, eiga líka í baráttu við langanir sínar. Sem dæmi má nefna ógift fólk sem sér ekki fram á að geta gifst en kýs að hafa stjórn á kynhvötinni þrátt fyrir freistingar. Hið sama er að segja um gift fólk sem á maka sem getur ekki stundað kynlíf sökum fötlunar. Þetta fólk getur samt verið hamingjusamt og það getur samkynhneigt fólk líka ef það langar einlæglega til að þóknast Guði. – 5. Mósebók 30:19.