Sanna Messíasarspádómar að Jesús hafi verið Messías?
Svar Biblíunnar
Já, þegar Jesús var á jörðinni uppfyllti hann fjölda spádóma um ,hinn smurða‘ sem myndi verða „frelsari heimsins“. (Daníel 9:25; 1. Jóhannesarbréf 4:14) Og jafnvel eftir dauða sinn hélt Jesús áfram að uppfylla Messíasarspádóma. – Sálmur 110:1; Postulasagan 2:34-36.
Hvað merkir orðið „Messías“?
Hebreska orðið Ma shi‘ach (Messías) og samsvarandi orð á grísku, Khri stos (Kristur) merkja bæði „hinn smurði“. Þar af leiðandi merkir „Jesús Kristur“, „Jesús hinn smurði“ eða „Jesús Messías“.
Á biblíutímanum var fólk oft smurt með olíu sem var hellt á höfuð þess þegar það var smurt eða skipað í sérstakar valdastöður. (3. Mósebók 8:12; 1. Samúelsbók 16:13) Jesús var útnefndur af Guði til að vera Messías. Þetta er mikil valdastaða. (Postulasagan 2:36) En Guð smurði Jesú ekki með olíu heldur heilögum anda. – Matteus 3:16.
Gætu fleiri en einn átt að uppfylla Messíasarspádómana?
Nei, rétt eins og fingrafar auðkennir aðeins eina manneskju þá benda uppfylltir spádómar Biblíunnar aðeins á einn Messías, það er að segja Krist. Í Biblíunni er hins vegar varað við „að fram munu koma falskristar og falsspámenn og þeir munu gera stór tákn og undur svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það er unnt.“ – Matteus 24:24.
Gæti Messías átt eftir að birtast?
Nei, í Biblíunni er sagt fyrir að Messías yrði afkomandi Davíðs konungs í Ísrael. (Sálmur 89:4, 5) En ættarskrár Gyðinga sem sýna ættartöluna aftur til Davíðs eru týndar. Þær eyðilögðust greinilega þegar Rómverjar unnu Jerúsalem árið 70. a Þaðan í frá er ógerningur fyrir nokkurn að sanna að hann sé af konungsætt Davíðs. Aftur á móti á fyrstu öld, á meðan ættarskrárnar voru til, neituðu jafnvel óvinir Jesú því ekki að hann væri afkomandi Davíðs. – Matteus 22:41-46.
Hversu margir Messíasarspádómar eru í Biblíunni?
Það er ekki mögulegt að tilgreina ákveðinn fjölda Messíasarspádóma. Það getur verið breytilegt hvernig spádómar eru taldir jafnvel í köflum sem hafa greinilega að geyma Messíasarspádóma. Í Jesaja 53:2-7 er minnst á mörg spádómleg atriði varðandi Messías. Sumir myndu segja að þetta væri einn spádómur en aðrir gætu litið á þetta sem fleiri spádóma.
Nokkrir Messíasarspádómar sem Jesús uppfyllti
Spádómur |
Er að finna í |
Uppfylling |
---|---|---|
Niðji Abrahams |
||
Afkomandi sonar Abrahams, það er Ísaks |
||
Fæddist í Júdaættkvísl í Ísrael |
||
Af konungsætt Davíðs konungs |
||
Fæddur af mey |
||
Fæddist í Betlehem |
||
Kallaður Immanúel b |
||
Látlaus og fábrotin byrjun |
||
Ung börn drepin eftir fæðingu hans |
||
Kallaður frá Egyptalandi |
||
Kallaður Nasarei c |
||
Sendiboði fór á undan honum |
||
Smurður sem Messías árið 29 d |
||
Guð staðfesti að hann væri sonur sinn |
||
Brann af ákafa vegna húss Guðs |
||
Flutti fagnaðarboðskap |
||
Þjónusta í Galíleu eins og mikið ljós |
||
Vann kraftaverk eins og Móse |
||
Eins og Móse flutti hann boðskap frá Guði |
||
Læknaði marga |
||
Dró ekki athygli að sjálfum sér |
||
Sýndi þjáðum samúð |
||
Boðaði réttlæti Guðs |
||
Undraráðgjafi |
||
Kunngerði nafn Jehóva |
||
Talaði í dæmisögum |
||
Leiðtogi |
||
Margir trúðu ekki á hann |
||
Ásteytingarsteinn |
||
Hafnað af mönnum |
||
Hataður að ástæðulausu |
||
Reið inn í Jerúsalem á ösnufola |
||
Börn lofuðu hann |
||
Kom í nafni Jehóva |
||
Svikinn af félaga sem hann treysti |
||
Svikinn fyrir 30 silfurpeninga e |
||
Vinir hans yfirgáfu hann |
||
Ljúgvottar báru vitni gegn honum |
||
Hljóður frammi fyrir þeim sem ákærðu hann |
||
Menn hræktu á hann |
||
Sleginn í höfuðið |
||
Barinn |
||
Veitti þeim ekki mótspyrnu sem slógu hann |
||
Stjórnmálaleiðtogar lögðu á ráðin gegn honum |
||
Negldur á staur í gegnum hendur og fætur |
||
Hlutkesti varpað um föt hans |
||
Talinn með syndurum |
||
Smánaður |
||
Leið þjáningar fyrir syndara |
||
Guð virtist hafa yfirgefið hann |
||
Gefið edik og beiskar jurtir að drekka |
||
Þyrstur rétt áður en hann dó |
||
Fól Guði anda sinn |
||
Gaf líf sitt |
||
Lagði fram lausnargjald til að taka burtu syndir |
||
Bein hans voru ekki brotin |
||
Stunginn |
||
Grafinn með ríkum |
||
Reistur upp frá dauðum |
||
Annar kom í stað þess sem sveik |
||
Settist við hægri hönd Guðs |
a Biblíuorðabókin McClintock and Strong‘s Cyclopedia segir: „Það bendir allt til þess að ættarskrár Gyðinga hafi ekki verið eyðilagðar fyrr en Jerúsalem var lögð í rúst.“
b Hebreska nafnið Immanuel merkir „Guð með oss“ og lýsir vel hlutverki Jesú sem Messías. Nærvera hans á jörð og verk sanna að Guð er með tilbiðjendum sínum. – Lúkas 2:27-32; 7:12-16.
c Heitið „Nasarei“ kemur frá hebreska orðinu ne‘tser og þýðir „sproti“.
d Til að skoða nánar tímatal Biblíunnar varðandi árið 29 sem árið sem Messías kom, sjá greinina „Spádómur Daníels um komu Messíasar“.
e Þessi spádómur er í bók Sakaría en biblíuritarinn Matteus segir að þetta hafi verið „sagt fyrir munn Jeremía spámanns“. (Matteus 27:9) Bók Jeremía virðist stundum hafa verið fyrst í röð biblíubóka sem kölluðust „spámennirnir“. (Lúkas 24:44) Matteus vísar greinilega í Jeremía þegar hann á við allar bækurnar, þar á meðal bók Sakaría.